10.04.1985
Efri deild: 55. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4094 í B-deild Alþingistíðinda. (3404)

165. mál, sláturafurðir

Davíð Aðalsteinsson:

Virðulegi forseti. Eins og hv. þm. rekur minni til hét ég því fyrir hönd formanns landbn. að þetta mál yrði tekið til athugunar á nýjan leik vegna gildistíma. Vegna mikils annríkis í landbn. hefur ekki tekist að vinna þetta mál svo sem lofað var. Ég bið um frest vegna afgreiðslu málsins svo að landbn. fái ráðrúm til að fjalla um málið og allir geti nú staðið við stóru orðin — loforðin í þessu efni.