15.04.1985
Efri deild: 56. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4178 í B-deild Alþingistíðinda. (3501)
404. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til. l. um Fiskveiðasjóð Íslands, en frv. þetta er flutt í framhaldi af skuldbreytingu á lausaskuldum sjávarútvegsins, en að því máli hefur unnið um langt skeið vinnuhópur. Alltaf var gert ráð fyrir því að Fiskveiðasjóður Íslands yfirtæki allt að 500 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar upphæðar í erlendri mynt sem sérstaklega var ráðstafað til að greiða fyrir nefndri skuldbreytingu. Henni er að mestu eða öllu leyti lokið og nýttar hafa verið af þessu fé um það bil 405 millj. kr. Það er hins vegar svo að ýmis fyrirtæki voru í góðum skilum við sína viðskiptaaðila, en höfðu hins vegar safnað verulegum skuldum hjá bankastofnunum. Það hefur verið til meðferðar hjá téðri nefnd með hvaða hætti skuli litið til þeirra eftir að ljóst er að nokkurt fjármagn er eftir af þeirri áætluðu tölu sem ráðstafað var í þessu skyni. Ég sé ekki ástæðu til að fara nákvæmlega út í það mál hér. sjálfsagt er að nefndin afli sér þeirra upplýsinga og að sjálfsögðu munum við koma til nefndarinnar öllum þeim upplýsingum sem verða má í sambandi við mál þetta, en best er að viðkomandi nefnd sé beðin um sem ítarlegastar upplýsingar sem að mestu leyti eru hjá þeim bönkum sem í hlut eiga.
Einnig er gert ráð fyrir því í frv. þessu að stimpilgjöld af skuldabréfum séu felld niður, en heimild var í fyrri lögum að fella niður slík stimpilgjöld á s. l. ári vegna þess að menn höfðu vænst þess að frágangi þessara mála væri lokið fyrir áramótin 1984–1985. Svo var því miður ekki og því er nauðsynlegt að taka það ákvæði upp að nýju þannig að ljóst sé að þessi stimpilgjöld séu felld niður, en þau hafa ekki verið innheimt það sem af er árinu.
Ég vil að lokinni þessari umr. leggja það til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.