16.04.1985
Sameinað þing: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4200 í B-deild Alþingistíðinda. (3551)

357. mál, húsnæðissamvinnufélög og búseturéttaríbúðir

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Á vegum formanna stjórnarflokkanna hefur fjórum mönnum verið falið að vinna að því að samræma sjónarmið stjórnarflokkanna í húsnæðismálum. Þessi nefnd hefur ekki lokið störfum og meðan svo er liggur ekkert fyrir um það hvaða tillögur nefndin muni leggja fram um þau efni.