16.04.1985
Sameinað þing: 71. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4237 í B-deild Alþingistíðinda. (3594)

215. mál, almannafé til tækifærisgjafa

Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um reglur um notkun almannafjár til tækifærisgjafa.

Nefndin fékk á sinn fund Halldór V. Sigurðsson ríkisendurskoðanda. Nefndin leggur til að till. verði samþ. óbreytt.

Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Birgir Ísl. Gunnarsson og Pétur Sigurðsson.