17.04.1985
Efri deild: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4303 í B-deild Alþingistíðinda. (3623)

416. mál, þingsköp Alþingis

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég verð að játa að mér fannst þetta óvenjuleg málsmeðferð. En þar sem allir þingflokkar hafa rætt þessi mál og komist að þessari niðurstöðu þykir mér ekkert undarlegt að þessi aðferð sé viðhöfð og þar að auki berum við allir sérstakt traust til forseta Sþ. og hljótum að virða hans úrskurð sem slíkan.