17.04.1985
Neðri deild: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4317 í B-deild Alþingistíðinda. (3644)

309. mál, atvinnuleysistryggingar

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það hafa komið hér fram mjög ákveðin tilmæli um það að þetta mál verði afgreitt sem lög frá Alþingi í dag. Við þeim tilmælum verður forseti mjög fúslega. Enda mátti segja að það væri sammæli með ráðh. sem með þessi mál fer og forseta að svo yrði gert. Það er almennur vilji fyrir því hér í hv. þd. að svo megi verða. Ef ekki kveðja sér fleiri hljóðs er þessari umr. lokið.