22.04.1985
Efri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4423 í B-deild Alþingistíðinda. (3713)
217. mál, Seðlabanki Íslands
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Það kom fram hjá hv. 5. þm. Vesturl. að hann óskar eftir að heyra skýra rödd hæstv. viðskrh. í þessu máli. En nú vill svo til að hæstv. viðskrh. getur ekki verið hér. Hann er bundinn á fundi annars staðar, utan þinghússins. (Gripið fram í.) Ja, hann er það á þessum tíma. (Gripið fram í: Er vitað hve lengi?) Það er mér ekki kunnugt um (Gripið fram í: Má kanna það?) Það má að sjálfsögðu kanna það og skulu gerðar ráðstafanir til þess að komast eftir því hvort ráðh. getur komið fyrir kl. 7. (Gripið fram í: Verður kvöldfundur í Ed.?) Það verður ekki kvöldfundur í þessari deild að öðru leyti en sá fundur sem stendur yfir núna. Þessari umr. verður frestað á meðan verið er að kanna hvort hægt er að ná sambandi við hæstv. viðskrh. — [Fundarhlé.]