22.04.1985
Efri deild: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4424 í B-deild Alþingistíðinda. (3716)

217. mál, Seðlabanki Íslands

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Það kom fram í máli hv. 5. landsk. þm.hv. 9. þm. Reykv. hafi beðið um upplýsingar frá hæstv. ráðh. svo sem hv. 5. þm. Vesturl. ítrekaði hér áðan fyrir hans hönd og sína. Það er venjan að forseti reyni að verða við slíkum óskum frá hverjum sem í hlut á. Þar sem ekki hefur tekist að ná sambandi við hæstv. viðskrh. og útséð um að hann komi á þennan fund, verður orðið við óskum þm. Umr. er hér með frestað og málið tekið út af dagskrá.