22.04.1985
Neðri deild: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4483 í B-deild Alþingistíðinda. (3755)

245. mál, lánsfjárlög 1985

Forseti (Karvel Pálmason):

Ég minni hv. þdm. á að ég lýsti því yfir í upphafi fundar í dag að ég hefði ekki ætlað mér að halda fund í kvöld nema frá kl. hálfníu til hálfellefu. Sú ákvörðun mín hefur ekkert breyst þó að að vísu séum við nú komin 10 mínútur fram yfir þann tíma. Enn er einn hæstv. ráðh. á mælendaskrá. Hæstv. félmrh. hefur beðið um einnar mínútu ræðutíma og tekur nú til máls.