30.10.1984
Sameinað þing: 11. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (380)
80. mál, einingahús
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það er greinilegt að samþykkt húsnæðismálastjórnar frá 19. sept. s.l. hallar á framleiðendur einingahúsa hér á landi. Það hefur sýnt sig að þessi iðngrein á fullan rétt á sér. Ég get því með ánægju lýst því yfir að ég mun styðja hæstv. félmrh. í því að ákvörðun húsnæðismálastjórnar verði breytt.