30.04.1985
Sameinað þing: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4609 í B-deild Alþingistíðinda. (3899)
411. mál, hvalveiðar
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Þann 2. febrúar 1983 samþykkti Alþingi þáltill. um hvalveiðibann þar sem segir:
„Alþingi ályktar að samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um takmörkun hvalveiða, sem kunngerð var með bréfi til ríkisstj., dags. 2. september 1982, verði ekki mótmælt af Íslands hálfu.“
Í nál. meiri hl. utanrmn., sem að baki þessari till. stendur, segir eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta: „Utanrmn. hefur að undanförnu fjallað ítarlega um hvort samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins varðandi bann við hvalveiðum skuli mótmælt. Nefndin hefur kallað til fundar fjölmarga aðila sem hafa veitt margvíslegar upplýsingar. Að athuguðu máli er það niðurstaða meiri hl. nefndarinnar að ekki sé ráðlegt að bera fram mótmæli.
Undirritaðir nm. telja að mikilvægt sé að auka enn rannsóknir á hvalastofnunum þannig að ávallt sé til staðar besta möguleg vísindaleg þekking sem liggi til grundvallar umræðum og ákvörðun um veiðar í framtíðinni.“
Í þessu nál. og í þessari þál. kemur fram skýr stefnumörkun í þessu máli. Í fyrsta lagi: að ekki skuli mótmælt samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins. Í öðru lagi: að það sé nauðsynlegt að auka enn rannsóknir á hvalastofnunum. Og í þriðja lagi: að slíkar rannsóknir liggi til grundvallar umræðum og ákvörðunum um veiðar í framtíðinni. Hér kemur fram sá vilji að hvalastofnarnir verði nytjaðir í framtíðinni ef vísindalegar upplýsingar koma fram sem gera það kleift.
Sjútvrn. hefur að öllu leyti starfað í máli þessu í samræmi við þennan skýra vilja Alþingis. Á s. l. hausti var skipuð nefnd til að afhuga með hvaða hætti vísindalegum rannsóknum yrði best fyrir komið eftir árið 1985 og í hvaða mæli væri nauðsynlegt að veiða hval í því skyni að stunda slíkar rannsóknir. Nefnd þessi skilaði skýrslu um málið í lok janúar s. l. og var skýrslan þá kynnt í ríkisstj. Einnig var hún send sem trúnaðarmál til nm. í utanrmn. Alþingis og var efni skýrslunnar rætt á fundi n. í febrúar s. l. Full samstaða varð um það í n. að næsta skrefið í máli þessu væri að gera ítarlega rannsóknaáætlun um vísindalegar rannsóknir — og vil ég taka það skýrt fram að slíkar rannsóknir er því miður ekki hægt að stunda nema um einhverjar hvalveiðar sé að ræða. Þessi rannsóknaáætlun þarf því að ná til tímabilsins 1986–1989. Með bréfi rn. 21. febrúar 1985 var Hafrannsóknastofnuninni formlega falin gerð slíkrar rannsóknaáætlunar.
Stofnunin hefur alveg nýlega skilað ítarlegri áætlun um margháttaðar rannsóknir á stórhvölum og hrefnum sem miða að því að auka þekkingu okkar á ástandi þeirra hvalstofna sem nýttir hafa verið hér við land, á veiðiþoli þeirra og stöðu hvala í lífkerfi íslenska hafsvæðisins. Í framhaldi af rannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunar er nú unnið að gerð framkvæmdaáætlunar sem nái yfir árin 1986–1989 og er gert ráð fyrir að hún verði jafnvel tilbúin í lok þessarar viku en væntanlega í næstu viku. Þessum rannsóknum er ætlað að auðvelda endurskoðun ákvörðunar um stöðvun hvalveiða samkv. samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1982 og ályktunar Alþingis frá 1983 um að hlíta þeirri stöðvun, og verða m. a. grundvöllur að endurmati á áhrifum veiðistöðvunar sem ætlunin er að verði framkvæmt eigi síðar en 1990.