30.04.1985
Sameinað þing: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4623 í B-deild Alþingistíðinda. (3924)
421. mál, sjómannadagurinn sem lögskipaður frídagur
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég hef margoft lýst því yfir sem minni skoðun að sjómannadagurinn eigi að vera allsherjarfrídagur sjómanna, þar eigi engin undantekning að vera á. Nú er það svo að þessi skoðun á sér meira og meira fylgi og menn hafa leitast við að ná saman um það að það sé ekki brotið að frí sé á sjómannadaginn. Ég held að það sé allra hluta vegna farsælast að reyna að ná sem víðtækastri samstöðu um mál þetta áður en til þess er gripið að sjómannadagurinn verði lögskipaður sem frídagur. Hins vegar er sjálfsagt að lögskipa hann sem fánadag. Þetta segi ég vegna þess að ég tel allar líkur fyrir því að fljótlega muni nást um það samstaða að svo muni verða. Ég hef þrátt fyrir mínar yfirlýsingar ekki viljað beita mér fyrir því á þessu þingi að svo verði en tel hins vegar sjálfsagt að taka það upp á næsta þingi, enda er stutt eftir af þessu þingi og ekki öruggt að slíkt mál næði hér fram að ganga nema mjög góð samstaða væri um það.
Það sem stendur í vegi fyrir því að allir séu sammála um að sjómannadagurinn sé frídagur allra sjómanna er einkum tvennt. Í fyrsta lagi telja þeir aðilar, sem stunda siglingar og selja á erlendum markaði, það afar óhentugt að úthald sé rofið með þeim hætti. Í öðru lagi hafa ýmsir talið að það yrði þess valdandi í sumum byggðarlögum að allt of mikill afli bærist að landi rétt fyrir frídaginn.
Nú er það hins vegar svo að ýmis verkalýðsfélög hafa samið um það að sjómannadagurinn sé frídagur, t. d. var það gert í samningi milli Alþýðusambands Austurlands og Útvegsmannafélags Austfjarða 1981 en þar stendur:
„Á föstudaginn langa, páskadag, 1. maí og sjómannadaginn skal ekki róið eða verið á sjó. Sé ákvæði þetta brotið skal allt aflaverðmætið úr veiðiferðinni renna til viðkomandi verkalýðs- og sjómannafélags.“
Sama gildir um Vestfirði og einnig hefur verið ákveðið í Vestmannaeyjum að sjómannadagurinn skuli vera frídagur sjómanna í stað 1. maí.
Ég tel því að sem betur fer stefni í það að sjómannadagurinn verði frídagur allra sjómanna undantekningarlaust og undanbragðalaust. Ég tel að hér sé um það mikið framtíðarmál að ræða fyrir íslenska sjómannastétt að rétt sé að doka aðeins við og sjá hvort ekki geti orðið um mál þetta allsherjarsamkomulag hagsmunaaðila. Ég mun halda áfram að ræða þessi mál við þá eins og ég hef gert að undanförnu og vænti þess að málið verði enn lengra komið í upphafi næsta þings.