30.04.1985
Neðri deild: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4677 í B-deild Alþingistíðinda. (3960)

Afgreiðsla þingmála

Friðriks Sophusson:

Herra forseti. Vegna ummæla hæstv. forseta núna síðast langar mig til að spyrja hvort beri að skilja orð hans svo að á næstu fundum verði þá séð til þess að þetta mál, sem hann gerði að umræðuefni, verði á dagskrá og þm. séð fyrir nægum tíma til að ræða mál út því að talsverður þrýstingur er á að þetta mál komist til loka 2. umr. þannig að séð verði fyrir um afdrif þess.