02.05.1985
Sameinað þing: 78. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4680 í B-deild Alþingistíðinda. (3971)

206. mál, nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Framkvæmd varnarsamningsins er í höndum ríkisstj. Hún er ekki fjölskipað stjórnvald og utanrrh. fer með framkvæmd varnarsamningsins. Það er fráleitt að ætla að framkvæmd varnarsamningsins verði stjórnað með þáltill. á Alþingi. Ég segi nei.