03.05.1985
Efri deild: 63. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4758 í B-deild Alþingistíðinda. (3998)
292. mál, tollskrá
Frsm. minni hl. (Eiður Guðnason):
Virðulegi forseti. Ég get verið stuttorður um þetta mál. Við þrjú sem skipum minni hl. n., þ. e. auk þess sem þetta mælir hv. þm. Ragnar Arnalds og hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, gerum till. um að þetta frv. verði samþykkt. Tvennt er til að taka.
Fyrst: Fram hefur komið að hæstv. fjmrh. muni leggja fram frv. til breytinga á tollskrárlögum þar sem þau fríðindi ráðh. sem hér um ræðir verði afnumin. Þetta frv. höfum við enn ekki séð. Það hefur ekki litið dagsins ljós hér á hinu háa Alþingi og raunar ekkert vitað hvort það verður fyrir þetta vor. Þó svo að frv. yrði sýnt er tollskrárfrv. mikið að vöxtum, flókið mál sem afar hæpið er að yrði samþykkt á þessu vori.
Í öðru lagi hafa yfirlýsingar forsrh., þó góðar séu, ekki lagagildi. Þess vegna sjáum við ekki hvers vegna það er ekki stjórnarsinnum og ríkisstj. að meinalausu þó að þetta frv. sé nú samþykkt. Eina skýringin sem ég kann á því að hæstv. ráðherrar beita sér gegn því að þetta frv. er samþykkt er sú að þeir bítast nú á um það í blöðum, hæstv. fjmrh. og forsrh., hvor hafi átt upptökin að því að leggja til að þessi fríðindi yrðu felld niður. Þeir um það. Þeir mega halda áfram að bítast um það. Það skiptir ekki máli að mínu mati. Meginatriðið er að þessi fríðindi verði afnumin og það hefur verið það sem þetta litla frv. gerir ráð fyrir sem stjórnarliðið vill nú vísa til ríkisstj. vegna þess að fjmrh. segist ætla að gera þetta og segist ætla að leggja hér fram frv. Forsrh. skrifar formanni n. bréf en samt vilja menn ekki samþykkja frv. og eftir stendur það óhaggað. Lagaheimildin til þess að veita þessi hlunnindi kemur til með að standa áfram nema því aðeins að þetta frv. verði samþykkt. Þess vegna er það skoðun okkar sem skipum minni hl. að þetta frv. beri að samþykkja.