07.05.1985
Sameinað þing: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4848 í B-deild Alþingistíðinda. (4118)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Helgi Seljan):

Borist hefur svohljóðandi bréf dagsett 7. maí 1985:

„Kjartan Jóhannsson 3. þm. Reykn. hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Kristín H. Tryggvadóttir fræðslufulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingvar Gíslason, forseti Nd.

Kristín H. Tryggvadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hana velkomna til starfa.