07.05.1985
Sameinað þing: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4856 í B-deild Alþingistíðinda. (4131)
425. mál, stofnútsæði
Fyrirspyrjandi (Kolbrún Jónsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin, en ég vil jafnframt lýsa því yfir að ef flóabáturinn Drangur á að bera skaða af þessu tjóni, þá mun það á endanum lenda á ríkissjóði. Við vitum það að Drangur er ríkisstyrkt fyrirtæki og þar með er þetta tjón alls almennings í landinu og það finnst mér alvarlegur hlutur í svona máli.
Jafnframt kom fram að minni eftirspurn hjá kartöflubændum eftir stofnútsæði væri núna vegna þess hvað kartöfluuppskeran varð mikil. Þetta tel ég alrangt, þrátt fyrir að það komi frá Grænmetisversluninni, vegna þess að eftirspurnin er minni vegna þess að þetta er dýr vara. Ef hæstv. landbrh. hefur fylgst með frásögnum í blöðum undanfarið, þá hefur það komið fram að miklar skemmdir eru í kartöflum sem hafa gert mikinn skaða á þessu ári. Ný tegund af skemmd, svokallað hringrot, sem var mjög umtalað fyrir ári síðan vegna sendingar frá Finnlandi, hefur nú gert mjög mikinn usla og bændur hafa þurft að henda þúsundum poka af kartöflum. Þar af leiðandi væri enn þá brýnna að allt stofnútsæði sem til væri yrði fullkomlega nýtt til að komast hjá þeim síendurteknu skemmdum sem kartöflubændur bera ómælt tjón af. Eftirspurnin er því fyrst og fremst háð verði á þessari vöru til kartöflubænda en minnkar ekki vegna þess að þeir eigi nóg af kartöflum sjálfir.
Enn fremur kom fram að þetta væri um þriðjungur af öllu því stofnútsæði sem til væri. Gott og vel. Það slapp fyrir horn í þetta skipti vegna þess að það var góð uppskera. Aftur á móti hef ég fengið þær upplýsingar að stofnútsæði sé um 180–200 tonn. Þetta er hér um bil helmingur af þeirri tölu. Þar af leiðandi veit ég ekki hvort þeir eru með töluna sem uppskeru eða sem flokkaðar og tíndar kartöflur. Þetta eru upplýsingarnar sem ég fékk hjá Grænmetisversluninni, að heildarmagnið væri 180–200 tonn af stofnútsæði sem til væri, og þetta voru 98.8 tonn, sem þarna skemmdist verulegur hluti af í flutningum.