30.10.1984
Sameinað þing: 12. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (416)
60. mál, þjónusta vegna tannréttinga
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil lýsa eindregnum stuðningi við þá till. sem hér er flutt. Hér er vissulega hreyft stóru máli, einu af þeim málum sem sýna mönnum fram á hversu miklum erfiðleikum það er háð og hversu miklu meira það kostar það fólk sem er úti á landsbyggðinni að sækja eða nýta sér þessa þjónustu en þá sem eru hér í næsta nágrenni við hana. Þetta er einn þáttur í því félagslega óréttlæti sem ríkir í þjóðfélaginu, misvægi á þessu sviði, svo notað sé mjög margtuggið orð, misvægi réttlætisins.
Augljóst er að um gífurlega háar upphæðir er að ræða sem fjöldamörg heimili víðs vegar á landinu þurfa að inna af höndum vegna þessarar þjónustu. Þegar sá kostnaðarauki bætist ofan á ótalmargt annað sem þessir sömu aðilar þurfa að kaupa miklu dýrara verði en gerist hér á þessu svæði, þá segir það sig sjálft að vart verður við það unað öllu lengur að ekki sé reynt að draga verulega úr því óréttlæti sem landsbyggðarfólk býr við miðað við þéttbýliskjarnann hér á þessu svæði varðandi ýmiss konar félagslega þjónustu.
Ég vænti þess að almennt séu hv. þm. sammála um að hér þurfi leiðréttingar við, hér þurfi að ráða bót á. Vel má vera að ekki verði það gert í einu skrefi en með góðra manna hjálp má örugglega draga verulega úr þessum aukakostnaði sem landsbyggðarfólk þarf að greiða í þessu máli sem öðrum.
Ég ítreka stuðning minn við þessa þáltill. og vænti þess að ráðandi öfl í þjóðfélaginu taki tillit til þess kostnaðarauka sem þarna er um að ræða. Ég vænti þess að þm. almennt geri gangskör að því að mál þetta fái afgreiðslu og ekki bara það, heldur gangi síðan eftir því að framkvæmdavaldið fari eftir þeim vilja sem ég vona að sé hér á hv. Alþingi um að hér sé stigið skref til leiðréttingar frá því sem nú er.