08.05.1985
Efri deild: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4975 í B-deild Alþingistíðinda. (4224)
355. mál, starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Hæstv. forseti. Hér liggur fyrir brtt. á þskj. 872, frá hv. þm. Kolbrúnu Jónsdóttur og Stefáni Benediktssyni, við 5. gr. frv. til l. um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.
Eins og 5. gr. frv. hljóðar er óheimilt að ráða til þeirra starfa, sem undir þessi lög heyra, aðra en þá sem heilbrrh. hefur veitt löggildingu skv. lögum þessum og reglugerðum sem settar kunna að verða skv. þeim. Ég vil minna á í þessu sambandi að hér er um rammalöggjöf að ræða þar sem hlýtur að koma fram meginstefna. Um annað er ekki að ræða að mínum dómi. Eins og fram kemur í frv. er að sjálfsögðu gert ráð fyrir að auk þeirra reglna sem kveðið er á um í 2. gr. geti ráðh. sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara. Ég tel eðlilegt að meginreglur séu skýrar, en þar sem vikið er að reglugerðarsetningu sé eðlilegt að um mismunandi forsendur geti verið að ræða með tilliti til hinna ýmsu stétta og skynsamlegra að athuga þessi mál. Þá er ég með brtt. á þskj. 872 í huga. Í þeirri brtt. er óyggjandi gert ráð fyrir að aðili hafi hlotið löggildingu. Frá því er ekki hvikað. Ég ítreka að heilbr.- og trn. var sammála um afgreiðslu þessa máls að svo miklu leyti sem menn voru mættir þar til starfa. Ég vil enn fremur benda á að heilbr.- og trn. Nd. var samhljóða í áliti sínu um þetta frv.