09.05.1985
Efri deild: 68. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5013 í B-deild Alþingistíðinda. (4279)

165. mál, sláturafurðir

Davíð Aðalsteinsson:

Hæstv. forseti. Hér er til einnar umr. frv. til laga um meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum með síðari breytingum. Eins og hv. þdm. rekur minni til var þessu frv. breytt eilítið þegar það var til meðferðar hér í deildinni fyrr á þinginu. Þar var aðeins um að ræða breytingar á ártölum. Upphaflega var gert ráð fyrir því að þau ákvæði sem hér er vikið að giltu til 1985. Við breyttum því í þessari hv. deild í 1986. En hv. Nd. hefur nú bætt um betur og vill hafa það 1987. Ég hef haft samband við þá hv. nm. í landbn. sem hér eru viðlátnir. Þeir hafa ekki athugasemdir við þessar betrumbætur Nd. og ég lít svo til að þetta verði samþykkt athugasemdalaust hér.