09.05.1985
Efri deild: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5024 í B-deild Alþingistíðinda. (4298)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Kolbrún Jónsdóttir:

Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hv. frsm. sjútvn. skrifaði ég undir nál. með fyrirvara. Sá fyrirvari, sem ég hef um samþykkt þessa frv., er sá að 10. gr. frv. falli niður, eins og fram kemur á þskj. 883 sem ég flyt ásamt hv. þm. Stefáni Benediktssyni. Hann hefur nú gert grein fyrir okkar afstöðu og tel ég því ekki ástæðu til að tíunda þetta frekar.