10.05.1985
Neðri deild: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5121 í B-deild Alþingistíðinda. (4378)

164. mál, kerfisbundin skráning á upplýsingum

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Lagafrv. það sem hér kemur fyrir hv. Nd. er þannig til komið að í gildandi lögum um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni, nr. 63/1981, er mælt fyrir um að dómsmrh. skuli láta endurskoða lögin og leggja frv. þar að lútandi fyrir Alþingi í þingbyrjun haustið 1984. Það varð að ráði, sem eðlilegt má telja, að fela tölvunefnd að vinna að þeirri endurskoðun, en hún hefur starfað samkv. lögunum í nærri þrjú ár, frá því að lögin tóku gildi. Sá kostur var tekinn að bera frv. þetta fram með þeim breytingum frá gildandi lögum sem nm. voru sammála um að mæla með að gerðar yrðu á lögunum. Þær aðrar hugmyndir um breytingar sem ræddar voru í nefndinni, en ekki var einhugur um, koma fram í bréfi tölvunefndar sem rakið er í athugasemdum við frv.

Þær breytingar, sem í frv. þessu eru gerðar tillögur um að verði gerðar á lögunum, eru yfirleitt ekki veigamiklar, enda telur tölvunefnd að lögin hafi reynst vel í framkvæmd og ekki hafi komið fram verulegir gallar á þeim. Dómsmrn. er sammála nefndinni í þessu mati hennar á reynslu af framkvæmd laganna. Má þá jafnframt hafa í huga að tölvunefnd hefur haft með höndum mjög veigamikil frumherjastörf þar sem hvort tveggja er að sú tækni sem að mestu er fjallað um er í hugum flestra nýstárleg og viðbrögð til hagsmunagæslu í því samhengi mjög ný af nálinni og raunar sífellt í mótun, svo ör sem tækniþróun er á þessu sviði.

Eins og áður var sagt eru brtt., sem í frv. felast, yfirleitt ekki veigamiklar. en ein sker sig þó úr og er þess að vænta að hún muni þykja tímabær. Er það ákvæði í nýrri málsgr. sem bætist við 13. gr. laganna og fjallar um neytenda- og skoðanakannanir. Er þar að finna fyrirmæli um vinnubrögð þeirra sem framkvæma neytenda- og skoðanakannanir sem falla undir ákvæði laganna. Er rétt að skoða þau ákvæði í samhengi við 1. gr. laganna. Er þess vænst að hv. alþm. muni skoða þessi ákvæði náið og má vonast til þess að mönnum þyki hófsamlega á þessu mikilsverða málefni tekið.

Hv. Ed. hefur þegar athugað frv. og afgreitt það. Hún féllst á þær brtt. sem lagðar eru fram í frv. og gerði ekki aðrar breytingar á því en þær að setja á ný inn í frv. grein sem kveði á um að endurskoðun laganna skuli aftur fara fram innan þriggja ára og breyting þá lögð fyrir Alþingi þar sem þau falla úr gildi í árslok 1988. Enda þótt nokkur reynslutími sé nú kominn á gildi þessara laga og þau hafi staðist vel, og af þeim sökum var fellt niður slíkt endurskoðunarákvæði í upphaflega frv., má segja að það sé eðlilegt, vegna þess hvað örar breytingar og framfarir eru á sviði þessarar tækni, að þau séu endurskoðuð aftur eftir þrjú ár.

Ég legg svo til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.