13.05.1985
Efri deild: 72. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5135 í B-deild Alþingistíðinda. (4416)
488. mál, orkulög
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka góðar undirtektir við frv. um breytingu á orkulögum og þær hugmyndir að stofna til hlutafélags til þess að sinna þeim verkefnum á vegum Orkustofnunar. Ég kannast vel við þau frv. sem hv. 3. þm. Norðurl. v. gat um. Margt er þar vel athugað og nýtilegt og ég veit að sú vinna, sem þar hefur verið innt af hendi, og þær upplýsingar, sem þar eru saman komnar, munu nýtast við þá endurskoðun á þessum málum sem nú er unnið að. Ég get hins vegar ekki svarað því hér og nú hvenær vænta megi frv. fyrir hið háa Alþingi um þessa málaflokka, en öll eru mál þessi í gagngerðri endurskoðun og sem mest að vinna við að greiða fram úr ýmsu því sem manni hefur þótt vera þar ábótavant. Vil ég í því sambandi alveg sérstaklega geta um fjármálahlið orkubúskapar okkar.