13.05.1985
Neðri deild: 68. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5156 í B-deild Alþingistíðinda. (4446)

5. mál, útvarpslög

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Menn eru mjög farnir að leika sér með dagsetningar. Nú hefur deildin samþykkt að þessi lög skuli ganga í gildi 1. jan. 1986 en eigi að síður skuli stjórn Menningarsjóðs útvarpsstöðva skipuð í fyrsta sinn fyrir árslok 1985. Hvernig má þetta tvennt fara saman?