14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5200 í B-deild Alþingistíðinda. (4486)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Svohljóðandi bréf hefur borist:
„Reykjavík, 14. maí 1985.
Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég vegna fjarveru og anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Einar Kr. Guðfinnsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti. Ingvar Gíslason, forseti Nd.“
Einar Kr. Guðfinnsson hefur setið áður á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann nú á ný velkominn til starfa.