14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5226 í B-deild Alþingistíðinda. (4522)
446. mál, fjárhagstuðningur við Kvennaathvarf
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegur forseti. Ég verð að harma það að svör mín skuli valda vonbrigðum vegna þess að ég þekki afskaplega lítið til starfsemi Kvennaathvarfsins. Þó þekki ég nokkuð til. Ég var spurður sem fjmrh. og svaraði sem slíkur, en ef ég ætti að svara sem einstaklingur gæti ég kannske svarað öðruvísi.
Svör mín geta kannske valdið fyrirspyrjanda vonbrigðum vegna þess að ég svaraði sem fjmrh. og um þær óskir sem mér hafa borist sem slíkum. Fyrri fsp. gefur ekki tilefni til öðruvísi svara. Mitt svar gefur ekkert tilefni til þess að viðkomandi fari að láta í ljós vonbrigði hvort sem ég veit lítið eða mikið eða kannske ekki neitt um viðkomandi starfsemi. Ég hef ekki kynnt mér reksturinn. Það kom fram hjá mér. Og ég hef ekki hugsað mér að gera það þrátt fyrir að ég hafi verið mjög opinn fyrir stuðningi við þetta málefni þegar til mín hefur verið leitað.
Ég hef fulla ástæðu til þess að ætla. miðað við þann rekstur sem er t. d. á borgarheimilinu í Þingholtsstræti, að það sé full þörf fyrir slík athvörf fyrir karlmenn. Ef fólk vill á annað borð berjast fyrir því að hjálpa því fólki sem er í vanda af heimilisástæðum. sem kom fram í máli hv. 7. landsk. þm. áðan, þá er ástæða til þess að Alþingi taki þennan málaflokk og geri honum skil með tilliti til beggja kynja því að ofbeldi er ekki einum að kenna þegar tveir berjast. En það er eins og það sé alltaf feimnismál að karlmenn eru líka til.
En ég ætla að biðja hv. 2. flm. þessarar fsp. að kynna sér þátttöku mína í málefnum sem eru á sama sviði, eins og t. d. varðandi einstæða foreldra, og mig langar að gefa honum einar upplýsingar. Ég vissi ekki annað en barnaheimili það sem starfar t. d. sem skóladagheimili hafi verið rekið á minn kostnað tvö fyrstu árin.