20.05.1985
Efri deild: 77. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5375 í B-deild Alþingistíðinda. (4637)

498. mál, stjórn efnahagsmála

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 13 frá 1979, um stjórn efnahagsmála o. fl. eins og það birtist á þskj. 926. Allt frá árinu 1976 hefur svonefnd lánsfjáráætlun verið samin að tilhlutan ríkisstj. og lögð fyrir Alþingi til umfjöllunar. Lög nr. 13/1979, um stjórn efnahagsmála o. fl., kveða á um efnisþætti fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar og ákvæði um framlagningarskyldu ríkisstj. Lánsfjárlög, sem Alþingi samþykkir á ári hverju, eru mikilvægur þáttur í ríkisbúskapnum og því þýðingarmikið að umfjöllun Alþingis og afgreiðsla á lánsfjárlögum séu samhliða afgreiðslu fjárlagafrv. hverju sinni. Hins vegar hefur það oft gerst þrátt fyrir það að lánsfjáráætlun og lánsfjárlög hafi verið lögð fyrir Alþingi áður en fjárlög hafi verið afgreidd að dregist hefur úr hömlu með að afgreiða lánsfjárlög. Afgreiðsla Alþingis á þessum tveimur veigamiklum lögum veldur oft erfiðleikum í framkvæmd ríkisfjármála í upphafi fjármálaárs. Tel ég nauðsynlegt að kveðið sé á um það í lögum að fjárfestingar- og lánsfjáráætlun hafi verið tryggð samtímis umr. og afgreiðslu fjárlagafrv. hverju sinni.

Enn fremur er með frv. þessu lagt til að gerð sé sú breyting á framsetningu á lánsfjárlögum til ríkisaðila að heildarstaða þeirra mála sé skýrari. Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1985 var í fyrsta sinn sett fram í athugasemdum við frv. heilleg mynd af umfangi ríkisfjármála hér á landi. Það hefur farið eftir þeim uppgjörsreglum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur þróað. Bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Sameinuðu þjóðirnar hafa leitast við að samræma skilgreiningu og framsetningu þjóðhagsreikninga, þ. m. t. ríkisfjármál, í hinum ýmsu aðildarríkjum sínum.

Þetta frv., sem ég mæli hér fyrir, tekur til breytinga á III. og IV. kafla laga nr. 13/1979, en þeir kaflar fjalla um ríkisfjármál og fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir. Að því hefur verið fundið og það með réttu að fjárlög hverju sinni sýni ekki nægilega heilsteypta mynd af umfangi ríkisfjármála. Sambandið milli fjárlaga, fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar og lánsfjárlaga er því flókið og jafnvel óskýrt og mörgum hefur reynst erfitt að tileinka sér þá heildarsýn yfir þessi mál sem er forsenda skipulegrar umfjöllunar. Tilgangurinn með þessu frv. og enn fremur frv. um breytingu á lögum nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, er fyrst og fremst sá að móta heillega mynd af umfangi ríkisfjármálanna þar sem lánsfjármál ríkissjóðs og annarra aðila fá fyllri og nánari umfjöllun en hingað til hefur átt sér stað. Þannig gerir frv. ráð fyrir að framvegis verði yfirlit um lánsfjáröflun og lánsfjárráðstöfun ríkissjóðs að finna á einum stað, þ. e. í 1. gr. fjárlaga. Ætti það að auðvelda öllum þeim sem fjalla um ríkisfjármál og um þau vilja fræðast að hafa yfirsýn yfir þennan mikilvæga málaflokk.

Frv. gerir ráð fyrir að framvegis verði fjárfestingar- og lánsfjáráætlun hluti af grg. fjárlagafrv. hvers árs þannig að umfjöllun um lántökur og lánveitingar ríkissjóðs og annarra opinberra aðila eigi sér stað um leið og umr. um fjárlagafrv. fara fram hér á Alþingi. Þá gerir frv. ráð fyrir að framvegis verði það fjmrh. sem leggi fjárfestingar- og lánsfjáráætlun svo og frv. til lánsfjárlaga fram á Alþingi í stað ríkisstj. eins og kveðið er á um í núgildandi lögum. Þessi breyting er í samræmi við það verklag sem þróast hefur á undanförnum árum. Enn fremur að það verði fjvn. Alþingis sem fjalli um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun eins og aðra þætti ríkisfjármálanna, þó svo að heimilda til lántöku verði leitað í frv. sem lagt verði fram í deild.

Þá er að finna í þessu frv. það nýmæli að framvegis verður að skylda fjmrh. að upplýsa Alþingi hverjar séu fjárhagslegar skuldbindingar þjóðarinnar út á við og sýna jafnframt áætlaðar greiðslur vaxta og afborgana af erlendum skuldum, minnst þrjú ár fram í tímann. Þessum þætti þarf sannarlega að gefa aukinn gaum.

Í frv. er að finna ákvæði sem gerir ráð fyrir því að umfjöllun Alþingis um ábyrgðarveitingar ríkissjóðs verði jafnhliða umr. um fjárlög og lánsfjárlög og að notkun ábyrgðarheimilda í sérlögum skuli framvegis vera innan þeirra marka sem fjárlög og lánsfjárlög ákvarða á því fjárlagaári sem um er að ræða. Þetta er reyndar í samræmi við þá venju sem komin er á.

Gert er ráð fyrir rýmkun á skilgreiningu á A-hluta fjárlaga. Þannig eru Almannatryggingar ríkisins og endurlánareikningur ríkissjóðs flutt úr B-hluta yfir í A-hluta fjárlaga til að bæta samræmi í uppsetningu. Ég vil vekja sérstaka athygli á því að yfirlit yfir lánamál endurlánareiknings ríkissjóðs hefur ekki verið að finna í fjárlögum hingað til.

Þá gerir frv. ráð fyrir að felldar verði niður nokkrar lagagreinar sem ekki hafa lengur þýðingu, en þessar greinar fjalla um markmið í ríkisfjármálum á árunum 1979 og 1980.

Að svo mæltu, virðulegi forseti, leyfi ég mér að leggja til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.