01.11.1984
Sameinað þing: 13. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (477)

22. mál, Fiskifélag Íslands

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég vil taka fram að sá ráðherra sem fer með mál þess félags sem hér er verið að ræða um vissi að þetta mál yrði tekið hér fyrir. Við höfum ekki í valdi okkar að fyrirskipa ráðherrum að vera við og við verðum að halda áfram umr. þó að ráðherra sé ekki við. Ráðherrar hafa ekki forsvar fyrir málum sem þm. bera fram.

Ég vil enn fremur taka það fram að þegar umr. hófust um þetta mál voru allmargir hér í þingsalnum og þannig hafa menn vitað um að þessi umræða færi fram.