22.05.1985
Neðri deild: 72. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5572 í B-deild Alþingistíðinda. (4804)

384. mál, varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Frsm. (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Félmn. hefur tekið til umræðu frv. til l. um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og rætt málið á einum fundi sínum og enn fremur þá breytingu á 4. gr. frv. sem gerð var í Ed.

Nefndin er sammála um afgreiðslu málsins og leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Ed. Undir þetta rita allir félmn.- menn, en fundinn sat hv. þm. Svavar Gestsson í stað hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar.