22.05.1985
Neðri deild: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5580 í B-deild Alþingistíðinda. (4828)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég er nokkuð undrandi á þeim ágætu ræðumönnum sem hér hafa talað í þessu máli og allir vilja vel og eru miklir áhugamenn í þessum efnum. Ég tel svo sjálfsagt að samþykkja frv. með þeirri breytingu sem gerð hefur verið í hv. Ed.