23.05.1985
Sameinað þing: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5595 í B-deild Alþingistíðinda. (4837)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 23. maí 1985.

Pálmi Jónsson, 1. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Páll Dagbjartsson skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Páll Dagbjartsson hefur áður setið á þessu þingi og ég býð hann velkominn til starfa á ný.