05.11.1984
Sameinað þing: 14. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (486)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til athugunar kjörbréf Málmfríðar Sigurðardóttur, 1. varamanns Samtaka um kvennalista sem tekur sæti á þingi sem 3. landsk. þm. í forföllum Guðrúnar Agnarsdóttur.

Kjörbréfanefnd gerir engar athugasemdir við kjörbréfið og leggur til að það verði samþykkt.