05.11.1984
Efri deild: 9. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (489)
134. mál, vöruhappdrætti Sambands íslenskra berklasjúklinga
Landbrh. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 18 22. apríl 1959 um vöruhappdrætti fyrir Samband ísl. berklasjúklinga. Frv. þetta er flutt vegna beiðni stjórnar happdrættisins. Dráttardagar hjá happdrættinu eru bundnir í lögum 10. jan. og síðan 5. hvers mánaðar. Reynsla happdrættisins er sú að tíminn frá áramótum — en þá hefst endurnýjun og sala happdrættismiða að marki — og fram að dráttardeginum 10. jan. sé of naumur. M.a. hefur orðið að veita sérstakar undanþágur vegna ófærðar og illviðra tvo síðustu vetur. Er því óskað eftir rýmkun á þessum tíma. Dráttardagar eru ekki fastákveðnir í lögum um hin föstu happdrættin, happdrætti Háskólans eða happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Er talið eðlilegt að breyta lögunum um vöruhappdrætti þannig að dagsetning dráttar verði eigi bundin í lögum frekar en hjá hinum happdrættunum sem starfa á sams konar lagagrundvelli. Verði þá kveðið á um þetta atriði í reglugerð fyrir happdrættið og þar tekið tillit til þarfa þess.
Hæstv. forseti. Ég legg til að frv. þessu verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.