29.05.1985
Efri deild: 84. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5732 í B-deild Alþingistíðinda. (5036)

382. mál, Sementsverksmiðja ríkisins

Jón Kristjánsson:

Virðulegi forseti. Í umr. um þetta frv. sem hér liggur fyrir hefur það komið fram að það skortir mikið á að nægileg samstaða sé um það og umsagnir hafa yfir höfuð verið neikvæðar frá þeim aðilum sem hlut eiga að máli. Ég tel óheppilegt að knýja frv. fram nú og segi því nei.