31.05.1985
Neðri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5797 í B-deild Alþingistíðinda. (5139)
416. mál, þingsköp Alþingis
Frsm. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um þessa till. Þessi hugmynd var nefndinni vel kunn, en hún hafði ekki hljómgrunn þar eftir að nefndin hafði rætt till. allnáið og reynt að kynna sér sögu hennar og aðdraganda. Brtt., sem hér var verið að lýsa, fjallar um það að kjósa skuli árlega til Ed. Það kom fram hér hjá hv. þm. sá misskilningur, sem ég held að hún hafi kannske frá okkur í milliþinganefndinni að nokkru leyti, því að sá misskilningur kom þar fram að 1972 hafi orðið sú breyting að farið var að kjósa til Ed. fyrir allt kjörtímabilið. Þetta er á nokkrum misskilningi byggt. Ég hef athugað þetta nánar og sögulega og þá kom í ljós að þetta ákvæði, að kjósa til Ed. fyrir allt kjörtímabilið, hefur verið í gildi alveg síðan 1915. Stjórnskipunarlögin voru sett þá og ef ég man rétt urðu þá veruleg umskipti á störfum Ed. að því leyti til að konungkjörnir þm. voru þá aflagðir og alveg ný skipan kom á Ed. Það var Sþ. sem kaus til Ed. Þetta hefur gilt alveg síðan 1915 og þetta var svo aftur sett í þingskapalögin við endurskoðunina árið 1936. En það sem gerðist 1972 — þó að þetta sé kannske ekki mikilvægt mál — var það að kjörbréfanefndin, sem hafði verið kosin árlega, skyldi kosin til fjögurra ára í senn eða til alls kjörtímabilsins.
Ég vil gjarnan að þessi villa verði leiðrétt því að e. t. v. á ég ásamt öðrum sem sátu í milliþinganefndinni minn þátt í því að koma þessu inn hjá ýmsum hv. þdm. sem hafa fjallað um þetta. Við höfum sennilega ekki kannað þetta mál nógu vel áður en við héldum fram þessari fullyrðingu.
Efnislega held ég að nefndin treysti sér ekki til að samþykkja þessa tillögu eða leggja það til. Það eru áreiðanlega ýmsir annmarkar á því að hverfa frá því að kjósa efrideildarmenn til alls kjörtímabilsins. Sú röksemd, sem ég aðhyllist langmest, er sú að þetta skapi meiri festu í þinginu en ella væri. Það er reyndar alveg af sömu rót runnið að einnig var lagt til að kjörbréfanefndin yrði kosin til alls kjörtímabilsins. Það er sammæli manna að það skapi meiri festu í þingstörfum að þessar mikilvægu kosningar gildi allt kjörtímabilið en ekki sé verið að breyta til á hverju ári.
Hins vegar er það athyglisvert sem hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir var að segja um þetta og hennar röksemdir. Ég er alls ekki að gera lítið úr þeim. Það kann að vera að í vissum tilfellum kæmi það sér betur, sérstaklega fyrir minni flokka, eins og hún orðaði það, að hafa hinn háttinn á. Það má vel vera að það sé nokkuð til í því. En á þessari stundu er nefndin ekki við því búin að mæla með samþykkt þessarar breytingar.