31.05.1985
Neðri deild: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5809 í B-deild Alþingistíðinda. (5158)

520. mál, frjálsir vöruflutningar á sjó

Ólafur Þ, Þórðarson:

Herra forseti. Hv. 4. þm. Suðurl. talaði hér um að menn bognuðu og aðlöguðu sig bandarískum lögum. Það kom greinilega fram þegar umr. voru hér um hvalveiðar við landið hverjir bognuðu, hverjir þorðu ekki og hverjir létu kúga sig. Ég hygg að hv. 4. þm. Suðurl. væri hollt að minnast þess.