04.06.1985
Sameinað þing: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5856 í B-deild Alþingistíðinda. (5211)
490. mál, fóstureyðingar
Fyrirspyrjandi (Kristín S. Kvaran):
Virðulegi forseti. Ég byrjaði á því fyrst í máli mínu að segja að öll umræða væri mjög viðkvæm um þessi mál og að nauðsynlegt væri að hún færi fram án öfga og af þeirri varfærni sem nauðsynleg er. Hæstv. ráðh. gat um það að gefnir hefðu verið út bæklingar hér í eina tíð. Það var vissulega virðingarvert framtak, en alls ekki er nóg að gert og er langt um liðið síðan þar var tekið til hendinni. Þar fyrir utan reikna ég með því að þó að hann hafi haft það framtak í frammi þá að dreifa bæklingum á borð þm. reikni hann jafnframt með því að þm. fari á þá staði þar sem þessa bæklinga er að fá. Geri þeir það ekki er vissulega vanbúið að þeim stöðum sem fólk almennt sækir. Þá hljóta að vera mjög margir aðrir sem ekki sækja þá staði þar sem þessa bæklinga er að fá.
Varðandi orð hv. 3. þm. Suðurl. vil ég segja að það voru alls ekki mín orð að fara ætti í herferð gegn fóstureyðingum hér á landi.