05.06.1985
Efri deild: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5921 í B-deild Alþingistíðinda. (5278)

522. mál, húsnæðissparnaðarreikningar

Frsm. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til l. um húsnæðissparnaðarreikninga á þskj. 1103. Nefndin hefur farið yfir frv. Eins og fram kom við 1. umr. málsins er ekki um ágreiningsmál að ræða og hv. þm. telja að hér sé um gott mál að ræða. Nefndin er sammála þessu og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.