05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5926 í B-deild Alþingistíðinda. (5290)
250. mál, réttur verkafólks til uppsagnarfrests
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um mál sem er í fyrsta lagi jafnréttismál vegna þess að hér er verið að flytja tillögu um tryggari starfsskilyrði þeirra sem starfa við útflutningsframleiðsluna og eru að yfirgnæfandi meiri hluta til konur. Hér er í öðru lagi á ferð byggðamál vegna þess að fiskverkunarfólk sem starfar um landsbyggðina er oft meginhlutinn af þeim íbúum sem búa í hinum ýmsu byggðarlögum landsins. Í þriðja lagi er hér um að ræða mannréttindamál vegna þess að þetta er tillaga um að láglaunafólk í fiskvinnslu hér á landi njóti sambærilegra réttinda og aðrir hafa fyrir löngu fengið með kjarasamningum eða lögum. Ég tel að með því að vísa þessu máli til ríkisstj. sé stjórnarmeirihlutinn að fella þetta mál, hann sé að sýna sitt stéttareðli, standa við hlið atvinnurekenda gegn samtökum launafólks í þessu landi. Ég tel að Alþingi eigi að samþykkja þetta frv. og ég segi því nei við till. meiri hl. félmn. deildarinnar.