05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5934 í B-deild Alþingistíðinda. (5317)

Um þingsköp

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Örstutt. Ég ætla að taka undir óskir hv. þm. Halldórs Blöndals um að það yrði frestað umr. um Byggðastofnun. Ég þarf að eiga orðastað við hann um það mál. Ég er fyrstur á mælendaskrá um Byggðastofnun, trúi ég, og þess vegna þætti mér vænt um að hann yrði viðstaddur þegar sú umr. heldur áfram. Því tek ég undir óskir hans um frestun.