05.06.1985
Efri deild: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5936 í B-deild Alþingistíðinda. (5324)

528. mál, jarðræktarlög

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Austurl. fyrir undirtektir hans við stefnu þessa frv. og mun hugleiða ábendingar hans um áframhaldandi vinnu við endurskoðun jarðræktarlaganna. En varðandi spurninguna um áhrif á fjárlagaupphæð þá er þessi uppsetning miðuð við að þarna sé um sambærilega upphæð að ræða.