06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (536)

72. mál, forræðislausir foreldrar

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Aðeins örstutt aths. við þessa síðustu spurningu. Ég held það sé ákaflega varhugavert að leggja hér fram niðurstöður um hvern einasta úrskurð og hvernig hvert mál hefur gengið. Ég held það sé svo persónulegt mál að ég treysti mér ekki til að gera það.