06.06.1985
Neðri deild: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5972 í B-deild Alþingistíðinda. (5380)

Um þingsköp

Forseti (Karvel Pálmason):

Ég vil nú í fyllstu vinsemd biðja hv. þdm. að stilla máli sínu í hóf í þessari umr. um þingsköp. (Gripið fram í.) Ég bið þm. enn að halda ró sinni, hér hefur ekkert verið afskráð enn, en bið þá enn og ítreka að hv. þdm. stilli máli sínu í hóf í umr. um þingsköp. Ég bið hv. þm. að gera sér grein fyrir því að hér er verið að biðja um orðið til að ræða um þingsköp, þetta er ekki utandagskrárumræða. Hæstv. menntmrh. hefur kvatt sér hljóðs um þingsköp.