10.06.1985
Efri deild: 93. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6109 í B-deild Alþingistíðinda. (5558)

464. mál, barnalög

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Allshn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. til laga um breytingu á barnalögum, nr. 9/1981. Málið er komið frá Nd. þar sem samstaða varð um það. Það gildir alveg það sama í þessari hv. deild. Nefndin er sammála um að mæla með samþykkt frv. eins og það kom frá Nd.. um það var enginn ágreiningur í nefndinni. Undir nál. rita Haraldur Ólafsson, Helgi Seljan, Eyjólfur Konráð Jónsson, Valdimar Indriðason og Eiður Guðnason. Kristín Ástgeirsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk þessu nál.