06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (558)
92. mál, sérdeild við sakadóm Reykjavíkur
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans um leið og ég harma það að ekki hafi verið samþykkt nú í fjárlagafrv. nægileg fjárveiting til þess að hrinda í framkvæmd þeim liðum sem fram koma í fyrirspurninni. Í 6. lið þál., sem væntanlega verður hér til umr. á eftir. er einmitt fjallað um það að veita á fjárlögum nauðsynlegu fjármagni til að stórauka allt skatteftirlit og rannsókn skattsvika.
Ég held, herra forseti, að hér sé mjög brýnt mál á ferðinni. Því vil ég spyrja, þar sem hæstv. dómsmrh. upplýsir að verið sé að endurskoða lögin um meðferð opinberra mála og ekki verði tekin afstaða um það fyrr en að því loknu hvort lagt verði fyrir Alþingi að stofnuð verði sérdeild við sakadóm Reykjavíkur, hvenær megi vænta að þeirri endurskoðun ljúki. Ég held að það sé mjög brýnt að stofnuð verði sérdeild við sakadóm Reykjavíkur. Það eru ekki margir mánuðir síðan fram kom í blöðum t.a.m. að þrjú stór skattsvikamál væru búin að velkjast í kerfinu í marga mánuði og dæmi væru til þess að dómsmeðferð í skattsvikamálum tæki jafnvel allt að áratug. Og maður veltir því fyrir sér hver sé skýringin á því. Er ástæðan sú e.t.v. að dómskerfið sé yfirhlaðið skattsvikum? Því svarar reyndar Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri fyrir nokkru í yfirheyrslu hjá Helgarpóstinum. Hann segir þar. með leyfi forseta:
„Það hefur vakið athygli hversu langur tími liður frá því að rannsókninni lýkur þar til í fyrsta lagi ákæran er gefin út og í öðru lagi þar til dómur fellur.
Til viðbótar þessu má kannske nefna að í einu skattsvikamáli, sem var vísað til ríkisskattstjóra 1972, féll ekki dómur fyrr en tæpum níu árum síðar. Það er þessi seinagangur í meðferð skattsvikamála sem veldur okkur talsverðum áhyggjum.“
Og Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri segir einnig í Þjóðviljanum 1. nóv. 1983, með leyfi forseta: „að undanfarin ár hefðu aðeins mjög fá mál verið send í dómsmeðferð, þannig að skýringin á þessum drætti gæti ekki verið sú að dómskerfið væri yfirhlaðið af flóknum skattsvikamálum. Við sendum aðeins fá stór og einföld mál þessa leiðina,“ sagði hann. „mál þar sem allar tölur eru sannaðar eða sannanlegar og þar sem ekki er deilt um upphæðir, einmitt til þess að málin komist fljótt í gegnum kerfið. Það hefur hins vegar dugað skammt.“
Það veldur auðvitað furðu að þetta skuli taka svona langan tíma gegnum dómskerfið, og hlýtur að vera ástæða til þess að stofna sérdeild við sakadóm Reykjavíkur, eins og Alþingi hefur reyndar ályktað um í þál. hér í maí. Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri hefur slegið því fram hvort verið gæti að það vantaði einhvern pólitískan vilja til þess að gera átak í skattsvikamálum. Hann segir einnig í þessari yfirheyrslu Helgarpóstsins, með leyfi forseta:
„Frumforsendan er auðvitað sú, að þær stofnanir sem vinna að þessu máli starfi í góðu framhaldi hver af annarri. Það er dálítið niðurdrepandi að sjá mál rykfalla þegar menn hafa lagt sig alla fram um að upplýsa þau og rannsaka. En það er kannske ekki bara við saksóknara, dómskerfið og okkur að sakast. Það vantar einhvern pólitískan vilja til þess að gera átak í þessum málum.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skattamálin eru til umr., en þessi umr. virðist ekki kveikja á perunni hjá þeim sem fara með vald til þess að láta til skarar skríða. Hæstv. dómsmrh. bendir á að þessi mál séu nú til endurskoðunar og það sé verið að endurskoða lögin um meðferð opinberra mála og að niðurstöðu sé beðið um það hvort framfylgt verði þeim vilja Alþingis sem fram kemur í þál. Ég tel þetta ekki nægjanlegt svar. Ég tel að þegar þm. eru að beina fsp. til hæstv. ráðh. þá séu þeir að óska eftir afstöðu hæstv. ráðh. til mála eða til þeirra fsp. sem lagðar eru hér fram. Ég vil því af þessu tilefni spyrja hæstv. dómsmrh.: Hver er afstaða hans til þess að stofnuð verði sérdeild við sakadóm Reykjavíkur? Telur hann það ekki rétt og eðlilegt með tilliti til þess seinagangs sem virðist vera í dómskerfinu varðandi skattsvikamálin? Og einnig ítreka ég þá fsp. hvenær megi vænta að þeirri endurskoðun ljúki sem hæstv. dómsmrh. greindi frá.