10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6126 í B-deild Alþingistíðinda. (5587)

523. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt samhliða frv. til l. um húsnæðissparnaðarreikninga sem ég mælti fyrir áðan. Hér er um að ræða þær nauðsynlegu breytingar sem gera þarf á lögunum um tekjuskatt og eignarskatt, en gert er ráð fyrir að veittur verði 25% skattafsláttur af því fé sem menn leggja á tekjuárinu inn á húsnæðissparnaðarreikninga í bönkum eða sparisjóðum. Ég vil vekja sérstaka athygli á því að sparnaður vegna húsnæðisöflunar þarf að vera bundinn samningum við banka eða sparisjóði eigi skattafsláttur að fást. Verði vanskil á innleggi fjár skv. samningnum getur skattafsláttur minnkað eða jafnvel fallið niður.

Verði bæði þessi frv. að lögum mun fjmrh. gera ráðstafanir til að þessi ákvæði verði kynnt þeim sem spara sérstaklega. Áætlanir um tekjutap ríkissjóðs vegna þessa nýja kerfis hafa ekki verið gerðar, enda nær ógerningur að spá um það atriði að dómi skattasérfræðinga fyrr en séð verður hvaða undirtektir þessi skipan fær hjá almenningi.

Herra forseti. Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.