06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (565)
95. mál, skattsvik
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Fyrri hluti fsp., sem hv. 2. landsk. þm. hefur borið fram, lýtur að því hvað líði framkvæmd þáltill. frá 3. maí s.l. um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum. Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig, sbr. áðurnefndan 6. tölul. þál. Um þetta er það að segja að verkefni þau, sem um getur í 2.–5. tölul. umræddrar þál. og eru mjög viðamikil og vandasöm, eru nú til skoðunar í fjmrn. Athugun þessi tengist eðli málsins skv. mjög vinnu við frv. til l. um virðisaukaskatt sem ég mun væntanlega leggja fram innan tíðar hér á Alþingi, auk þess sem hún tengist öðrum skattalagabreytingum sem fyrirhugað er að komi fram á þessu þingi.
Um framkvæmd á 6. tölul. nefndrar þál. er þess að geta að í júlí s.l. voru samþykkar 20 viðbótarstöður skatteftirlitsmanna í skattkerfinu sem hafa munu það meginverkefni að sinna skatteftirliti, einkum með heimsóknum í fyrirtæki og rannsóknum á skattsvikum. Nú þegar hafa níu skatteftirlitsmenn hafið störf og um áramótin er fyrirhugað að ráða í þær ellefu stöður skatteftirlitsmanna sem skv. framansögðu eru enn ómannaðar. Þá hefur verið og er enn unnið að skipulagningu þessa starfs og þjálfun hinna nýju starfsmanna.
Seinni hluti fsp. lýtur að því hvort starfshópur sá sem gera á úttekt á umfangi skattsvika, sbr. þál. um það efni frá 3. maí s.l., hafi verið skipaður. Um þessa spurningu er það að segja að nú nýlega tókst loks að manna starfshóp þennan. Hann skipa þeir Eyjólfur Sverrisson löggiltur endurskoðandi, Ólafur Davíðsson framkvæmdastjóri, Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri, Jónatan Þórmundsson prófessor og Þórólfur Matthíasson hagfræðingur. Mér þykir rétt að geta þess hér að í þál. er gert ráð fyrir að niðurstöður starfshóps þessa skuli leggja fyrir Alþingi ekki síðar en 1. mars n.k. Þar sem mjög hefur dregist að fullskipa hópinn tel ég einsýnt að honum verði ekki gert að skila niðurstöðum til Alþingis fyrr en haustið 1985.