10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6197 í B-deild Alþingistíðinda. (5656)

293. mál, sala Gullaugans og Áburðarverksmiðjunnar

Frsm. meiri hl. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Með því að 52. gr. í nýju frv. um breyt. á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl. fer efnislega alveg saman við þáltill. á þskj. 474 mun ég að sjálfsögðu heilshugar styðja þetta þarfa og ágæta mál á báðum stöðum og reyndar víðar ef ég mætti því við koma.