10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6198 í B-deild Alþingistíðinda. (5660)

525. mál, fjáröflun vegna húnsæðismála á árunum 1985 og 1986

Frsm. 2. minni til. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti 2. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um sérstaka fjáröflun vegna húsnæðismála á árunum 1985 og 1986.

Nefndin þríklofnaði um málið og varð ekki til meiri hl. í henni. en 2. minni hl. n. leggur til, eftir að hafa fjallað um frv. í n. ásamt öðrum nm., að frv. verði samþykki óbreytt.