10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6220 í B-deild Alþingistíðinda. (5681)

86. mál, áfengislög

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég tel réttast að þetta frv. verði fellt, en þar sem þessi brtt. kemur til atkv. áður en 1. gr. frv. og verði þessi brtt. samþykkt er það ótvíræð yfirlýsing hv. Ed. um að deildin vill ekki samþykkja frv. það sem hér liggur fyrir um að leyfa hér sölu á áfengum bjór og tekur þar með ótvíræða afstöðu sem er mikils virði. Því segi ég já.